Takk fyrir það líka !


 
Er ekki rétt að þakka Gussa gamla líka fyrir að sjá til þess að jeppinn ylti fram af? 
 
 
  imaginary-god  
 
 
 W00t
 
EÐA HVAÐ ? 

mbl.is Gamall líkbíll steypti stömpum í Kömbunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðir leiðtogar lifa enn, t.d. á Íslandi

  birds

 

Fuglalíf á höfuðborgarsvæðinu er dapurt þessa dagana eins og í Norður-Kóreu, þó svo leiðtogakrísan hrjái ekki íslendinga. Fullt af fínu fólki út um allt þó það flumbrist ekki um í fjölmiðlum að staðaldri.   

 

-0-0-0-0-0- 

 

   En ég sá kvikmynd á RÚV á jóladag, myndin sú fjallar um lúða sem fenginn er til að segja fólki upp í „hagræðingarskyni" í fyrirtækjum hingað þangað. Ekki ætla ég svo sem að bera þann durt saman við mína yfirmenn en þetta minnti mig samt á nýjustu „stefnu" míns  ohf.vinnuveitanda að segja upp fólki með fulla starfsorku við 67ára  aldur..............

..........AF ÞVÍ BARA !

Segja upp starfsfólki sem með trúmennsku áratugum saman hefur tekið þátt í að gera fyrirtækið að því sem það er í dag.  

Segja upp fólki sem alveg fram undir síðustu misseri taldi sig getað starfað til 70 ára aldurs eins og samkomulag og jafnvel samningar voru um.

   En svona eru víst þakkirnar fyrir vel unnin störf og tryggð við starfsemina áratugum saman, jafnvel allt frá þeim tíma þegar  æðstu núverandi stjórnendur fyrirtækisins voru rétt að losna við bleyjuna af botninum, sömu stjórnendur og nú líta á fólk sem kennitölur en ekki trausta starfsmenn sem enn eru í fullu fjöri.

 

just a number  

En þetta er bara stefnan hjá fyrirtækinu,stefna sem enginn persónulega virðist vilja viðurkenna að hafa haft átt hugmyndina að.

Og það þýðir ekkert að nöldra, því alveg eins og stjórnendur blöðrugróðærisfyrirtækjanna (sem flest eru farin á hausinn) sögðu áður, þá segja glaðbeittir stjórnendur ohf. ríkisfyrirtækjanna enn :  „SO SUE ME" og bjóða þér svo í mat !!!

Langskólagengnir nútímastjórnendur  OHF eru sko ekkert grín, enda stútfullir af allskonar námskeiðum og „masterum".

Millistjórnendurnir virðast svo bukta sig og beygja fyrir þessu og tala um „attitude problem" þegar einhverjir  ekki kyngja þessu hljóðalaust, ekki má nú styggja neinn. Sumt er jú bara hafið yfir gagnrýni.   Svona var þetta nú líka fyrir hrun hjá „group" gæjunum, en þá voru gagnrýnisraddir kæfðar á svipaðan hátt. 

 

bookstore-brown-noser-small-64814     

Ég vona nú samt að allir njóti jólanna og komandi áramóta sem best og sofi vel til að þeir haldi starfsorku sinni hvort sem sú orka fer í að festa sinn eigin rass í sessi eða til að reka aðra vegna „stefnu fyrirtækisins"  eða  svokallaðrar „hagræðingar".

 

nýtt ár

 Guð blessi þá feðgana alla; Kim-Óla-Song,Kim-Jong-Il og Kim-Jong-Un.


mbl.is Fuglar syrgja Kim Jong-Il
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins ein lausn á þessu !

 
 
 
Johnsen, KLM og allar hinar kjördæmapots-mannvitsbrekkurnar hafa svar við þessu.
 
 
Þar sem ekki er hægt að heimta höfn er bara ein lausn í sjónmáli: 
 
 
tunnel  
 
 
 
 Það þarf að grafa göng !

mbl.is Ökumenn í vandræðum á Hellisheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítt með það, en samt ekki ÞETTA !!!

 

Hérna er leiðari fréttablaðsins 22.12.2011 endurritaður orðrétt, höfundur er Þórður Snær Júlíusson.

Leturbreytingar, undirstrikanir og myndir eru svo af mínum völdum.

G.R. 

 

greed  

Spilling og græðgi


Björn Jón Bragason skrifaði nýverið grein um einkavæðingu Búnaðarbankans í tímaritið Sögu. Þar rekur hann gamalkunnan sannleik um þá fordæmalausu spillingu sem fylgdi þeim gjörningi af nokkurri dýpt. Tvennt í grein Björns vekur mikla athygli: samantekt hans á því hvað hinir ýmsu menn sem tengdust S-hópnum högnuðust gríðarlega í kjölfar einkavæðingarinnar og fullyrðingar um að sameining bankans og Kaupþings hafi verið skipulögð nokkrum mánuðum áður en ríkið seldi hlut sinn. 

Í grein Björns er sagt frá þeim ummælum  

froggy  

Páls Magnússonar, 

sem var aðstoðarmaður bankamálaráðherra, að Þorsteinn Már Baldvinsson, einn bjóðenda, væri "orðinn nógu ríkur" og fengi því ekki að kaupa bankann. Ýmsir aðrir menn, með mikil tengsl við Framsóknarflokkinn, voru hins vegar ekki orðnir nógu ríkir. Sérstaklega ekki þeir sem voru í hinum svokallaða S-hópi, en að honum stóðu eignarhaldsfélögin Samvinnutryggingar, Egla, Ker og VÍS.

Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga var félag utan um eigur tryggingataka sem hópur framsóknarmanna tók að sér að nýta í eigin viðskiptapólitík. Félagið var keyrt í gegnum nauðasamninga eftir bankahrun eftir að hafa tapað öllum peningum tryggingatakanna, að mestu í viðskiptasnúningum með Kaupþingi.

Kjalar, félag Ólafs Ólafssonar, eignaðist á endanum Eglu og Ker. Björn rekur í grein sinni að Kjalar hafi átt eignir upp á 3,2 milljarða króna í árslok 2003, en 85 milljarða króna tveimur árum síðar.

 

spilling  

Finnur Ingólfsson varð forstjóri VÍS nokkrum mánuðum fyrir einkavæðingu Búnaðarbankans. Stuttu áður hafði VÍS verið keypt af fjölskyldufélagi Halldórs Ásgrímssonar og Kaupfélagi Skagfirðinga, sem hefur rík tengsl við Framsóknarflokkinn. Seljandinn var ríkisbanki. Þau viðskipti skiluðu milljarða króna hagnaði á endanum. Í grein Björns segir að "fram að einkavæðingu Búnaðarbankans hafði Finnur Ingólfsson ekki komið nærri íslensku viðskiptalífi að neinu marki, en hann hafði gegnt stöðu þingmanns og ráðherra árum saman

…Finnur keypti fjórum sinnum hluti í Kaupþingi frá 20. ágúst 2003 fram til 3. ágúst 2004 . Samtals keypti hann hluti að nafnvirði 3.783.000, en það voru um 800 milljónir króna að raunvirði á þeim tíma.

 

finnur  

 

Ekki liggur fyrir hvernig hann fjármagnaði þessi kaup".

Björn segir líka frá því að svo virðist sem sameining Kaupþings við Búnaðarbankann hafi verið "hönnuð" á leynifundum mörgum mánuðum áður en einkavæðingin gekk í gegn. Þá fundi sátu, að sögn Björns, Finnur Ingólfsson, Sigurður Einarsson og Ólafur Ólafsson. Landsbankastjórinn fyrrverandi, Sigurjón Þ. Árnason, sagði við rannsóknarnefnd Alþingis að við sameininguna hefðu Kaupþingsmenn fengið það sem þeir þurftu; "lánshæfismat og viðskiptabankagrunn á Íslandi." Afleiðingin er öllum kunn: sameinaður banki orsakaði fimmta stærsta gjaldþrot heims og grunur er um umfangsmestu markaðsmisnotkun sem átt hefur sér stað.

Það er í tísku í dag að segja fólki að hætta að horfa í baksýnisspegilinn og horfa frekar fram á veginn. Það er hins vegar erfitt þegar útsýnið út um framrúðuna sýnir sömu einstaklingana og stóðu að rót vandans áhyggjulausa á fleygiferð inn í framtíðina.

 -0-0-0-0-0-0- 

Með þessum vel viðeigandi lokaorðum lauk þessum frábæra pistli, og ég endurtek að hann var leiðaragrein Fréttablaðsins 22.12.2011 og höfundur hans er Þórður Snær Júlíusson. 

 

Og þá er bara að muna þetta í næstu kosningum

 

xx  

 

þ.e.a.s. ef menn komast á kjörstað fyrir eigin froðufellingum eftir að hafa úthúðað núverandi stjórnvöldum fyrir að hafa "komið okkur í" þetta helvítis efnahagshrun. 

 

Sick 

 

 


mbl.is Launalækkun dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

STEINHISSA !!!!


 
 
Hún kannski stingur bara höfðinu í helgan stein,
eða þannig, hún kann það.
 
 
 
útfrymi  
 
 
Framsóknarútfrymið heldur þá stólnum. 
 
Gasp 
 
(Who gives a flying F... ? ) 

mbl.is Vigdís fer ekki fram gegn Birki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kóngurinn á Krít (upp á krít)

 

 

Það er pínlega hallærislegt þegar afskriftakóngar upp á tugi milljarða eru að gera sig breiða.  

 

   Svoleiðis kallar bjarga engu, hafa aldrei gert og munu aldrei gera. Ja nema kannski arðgreiðslum til sín og sinna og auðvitað afskriftunum.

 

almenni  

 

http://www.dv.is/frettir/2011/7/1/gudmundur-i-brimi-faer-20-milljarda-afskriftir-en-heldur-hlutabrefum/

 

 http://eyjan.is/2011/07/07/gudmundur-i-brimi-faer-154-milljonir-i-ard-af-vinnslustodinni-a-sidasta-ari/

 

asshole  

 

Hafa þessir gæjar ekkert lært ! 

Angry


mbl.is Á útgerðin að bjarga Kolaporti?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sólkonungurinn sukkar

 
 
Litlu máli skiptir líklega hvoru megin hryggjar komrade Álfheiður mun liggja þegar þetta snobbpartí fer fram.
 
 
 
 
En sólkonungurinn Grímsson Grís er nú vanur að rjúfa hefðir svo þetta "diss" gæti eflaust fallið honum vel í geð.
 
Woundering
 
Veislunni hefði samt mátt sleppa alfarið og senda kræsingarnar t.d. til Fjölskylduhjálparinnar.  Þær yrðu eflaust góðar með lýsinu.

mbl.is Þiggur ekki heimboð forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skilmysingur ?

 
 
 
JÓN
 
LENÍN
 
MOSDAL
 
BORAT
 
BJARNASON !
 
 
 
jb  
 
 
 
Shocking 
 
 
JÁ HVERSVEGNA ? 

mbl.is Ekki fullbúið frumvarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ósómi Íslands, svik þess og prettir


 

ógeð

 

 

 

 

 

Ég á það til að rugla þessum myndum saman, svo ég set þær bara báðar hérna.  

 

  Og það skal tekið fram að í ljósi síðustu atburða tel ég þetta blog bæði  málefnalegt og mjög við hæfi.

werners

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband