Huggun harmi gegn

Lukkumerkið fjögralaufa smárinn dugði semsagt ekki þegar upp var staðið. Óhamin græðgi þeirra sem ætluðu sér firna gróða á skömmum tíma varð SPRON að falli. Og kemur ekki á óvart. Sömu sögu er reyndar að segja af fjölda rótgróinna fyrirtækja sem eru ýmist komin í gjörgæslu eða opinbera eigu. Þar má nefna Eimskip, Baug, Icelandair, Pennann, Heklu, Straum og svo auðvitað bankana sem hrundu síðastliðið haust. Hömlulaus græðgi, glæpsamleg ósvífni og í sumum tilfellum stórmennskubrjálæði svokallaðra eigenda var svo takmarkalaust  að með réttu ætti þetta sóðapakk, þessir Jónar, Maggar, Siggar, Bjöggar, Hannesar og hvað þeir nú allir heita, að fara  í smá heimsókn úti við sundin blá því ekki er verra að vita hvort þeir verða hugsanlega taldir ósakhæfir. Húsrannsóknir og yfirheyrslur ættu svo að hefjast þar á eftir.    Koma svo ! ! !

En lítið gleður vesælan; á þessum hörmungatímum er það ótrúlegur léttir að þurfa ekki að hlusta á fyrrverandi ráðherra Björgvin G. Sigurðsson mala og bulla á sinn ótrúverðuga hátt út í það óendanlega, heldur er við stjórnvölinn fagmaðurinn Gylfi Magnússon sem verður - þrátt fyrir ótíðindin - ekki til þess að maður hugsi: ''hvert þó í logandi, ef þetta er fólkið sem stjórnar landinu þá er ekki von á góðu.'' En þannig virkaði nú BGS alltaf á mig.   blind græðgi

 Væri ekki best að vængstýfa sjálfgræðipungana í Byr líka úr því byrjað er á þessu,  þeir eiga örugglega ekkert betra skilið.


mbl.is 6 sparisjóðir óska eftir aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband